Verkþættir
Alhliða byggingarvinna, unnin af vönum hópum sem mæta með eigin verkfæri og vinnubíl.
Mótauppsláttur
Uppsláttur fyrir veggi, plötur og sökkla.
Járnabinding
Beyging og binding steypustyrktarjárns.
Trésmíði
Grindur, klæðningar, pallar, þakskipti og þakviðgerðir.
Múrverk
Alhliða múrverk, hleðsla og viðgerðir.
Pússning
Pússning á veggi og loft, innanhúss og utan.
Málningarvinna
Málun innanhúss og utan, nýbyggingar og viðhald.
Hvernig verk fer af stað
- 01
Þú sendir fyrirspurn
Hvaða verkþátt vantar, hvar verkið er og hvenær það hefst. Teikningar eru vel þegnar en ekki skilyrði.
- 02
Við sendum tilboð
Hvenær hópur getur byrjað, hve margir verða í honum og hvert tímagjaldið er.
- 03
Hópurinn mætir
Á umsömdum degi og með umsömdum fjölda manna. Reikningur með kennitölu og VSK númeri fylgir verkinu.
